Neyðarkall til þín dagana 30. október – 4. nóvember ⛑️
Salan á Neyðarkalli sem í ár er Hamfarakall hefst í dag og stendur yfir alla helgina.
Sjálfboðaliðar okkar munu standa vaktina á ýmsum sölustöðum í Grafarvogi, Grafarholti og Árbæ.
Við vonum að þið takið vel á móti sjálboðaliðunum og styðjið við bakið á okkur í þessari mikilvægu fjáröflun.❤️
Einnig viljum við benda fyrirtækjum og öðrum áhugasömum á að hægt er að kaupa stærri útgáfu af Neyðarkalli hjá sveitinni, vinsamlegast hafið samband á neydarkall@hssr.is fyrir frekari upplýsingar.
Björgunarmenn taka á móti ykkur með bros á vör og ávallt tilbúin í næsta útkall 😊
Takk fyrir stuðninginn🙏