Nýliðaþjálfun

N1 og Laugavegshelgin

Í HSSR er boðið upp á öfluga nýliðaþjálfun sem hefst í byrjun september ár hvert. Dagskráin verður kynnt á opnum fundum sem haldnir verða þriðjudaginn 27. ágúst og fimmtudaginn 29. ágúst þar sem áhugasömum gefst tækifæri á að sjá þjálfunaráætlun nýliða, kynnast starfi sveitarinnar, skoða aðstöðuna og tækin ásamt því að hitta nýliða og fullgilda félaga og spyrja spurninga. Fundirnir eru haldnir í húsnæði sveitarinnar að Malarhöfða 6 (M6) og hefjast þeir stundvíslega kl. 20:00.

Hagnýtar vefslóðir
Kynningarbæklingur um nýliðastarfið tímabilið 2024-26.

Umsókn um þjálfun sem nýliði í HSSR.

Almennt um nýliðaþjálfun
Fyrir flesta nýliða tekur þjálfun 18 mánuði. Á þeim tíma kynnast væntanlegir félagar því hvað fylgir því að starfa í björgunarsveit og fara á námskeið til þess að styrkja þá í væntanlegu starfi þeirra í sveitinni. Fyrra árið þjálfar fólk sem nýliðar 1 (N1), en færast upp í nýliða 2 (N2) seinna tímabilið ef öll áskilin námskeið hafa verið kláruð. Þátttakendur þurfa að vera vel á sig komnir líkamlega og andlega, reiðubúnir til að takast á við fjölbreytileg og erfið verkefni, hafa góð tök á íslenskri tungu og vera tilbúnir til þess að sýna frumkvæði og styrk.

Gott að vita ef þú ert að velta fyrir þér þátttöku í nýliðaþjálfun
Í byrjun þjálfunar eru nokkrir viðburðir sem nýliðar þurfa að mæta í og eru þeir helstir þessir:

  • Kvöldganga á Helgafell í Hafnarfirði (4. september), mæting á bílaplan við Helgafell kl. 18:30.
  • Dagsganga á Vörðuskeggja (7. september), mæting á M6 kl. 08:00
  • Búnaðarkynning (10. september) kl. 19 á M6.
  • Lokafrestur til að skila inn umsókn er 11. september.
  • Ferðamennska og rötun (13.-15. september), haldin á Úlfljótsvatni.
    • Fyrir þetta námskeið þarf að hafa eftirfarandi búnað:
      • Áttaviti (helst með spegli).
      • Reglustiku og gráðuboga.
      • Ritföng og pappír.
  • Nýliðakvöld (26. september), kvöldnámskeið, fyrirlestur eða stutt æfing.
  • Helgargönguferð (27.-29. september), gist í tjöldum.

Takið þessar dagsetningar frá ef þið eruð að íhuga þátttöku!

Fyrra árið í þjálfun
Á fyrra ári (12 mánuðir) er lögð áhersla á að nýliðar öðlist þann þekkingargrunn sem nauðsynlegur er svo þeir geti verið sjálfbjarga og tryggt eigið öryggi í æfingum og aðgerðum. Námskeið sem eru kennd á þessu ári eru meðal annarra:

  • Ferðamennska og rötun
  • Fyrsta hjálp
  • Ferðast á jökli
  • Grunnatriði í snjóflóðum
  • Fjallamennska
  • Jöklaganga
  • Veðurfræði til fjalla
  • Spottamál
  • Klifur og sig

Auk þess er farið í fjölda ferða; tjaldferðir í vetraraðstæðum, gönguskíða- og snjóhúsaferð og fleira. Nýliðar þurfa að vera virkir í að þjálfa sig og æfa utan formlegrar dagskrár.

Seinna árið í þjálfun
Á seinna árinu (u.þ.b. 8 mánuðir) er lögð á áhersla á fræðslu og þjálfun í því sem tengist beint þátttöku í æfingum og aðgerðum og má þar telja leitartækni og framhald í fyrstu hjálp. Þá fá væntanlegir félagar tækifæri til þess að sérhæfa sig á þeim sviðum sem þeir hafa sérstakan áhuga á. Geta þeir þar valið um námskeið í fjallamennsku, ísklifri, fyrstu hjálp, rústabjörgun og mörgu öðru. Á þessu tímabili taka félagar virkan þátt í starfi hópa HSSR og kynnast sveitinni þannig með beinum og virkum hætti.

Áfram er farið út fyrir borgarmörkin og ferðast í styttri og lengri ferðum. Nýliðar eru áfram virkir í að þjálfa sig og æfa utan formlegrar dagskrár.

Fullgilding nýliða
Flestir félagar ganga inn í sveitina 20 mánuðum eftir að þeir hefja nýliðaþjálfun sína. Fullgilding nýliða er háð því að nýliðar taki ákveðin grunnnámskeið sem allir þurfa að fara í gegnum ásamt því að hafa mætt í þær ferðir sem til er ætlast og sýnt virkni í starfi.

Fjáraflanir
Starf HSSR, sem og allra annara björgunarsveita hérlendis, er háð fjáröflunum. Rík áhersla er því lögð á að væntanlegir félagar í sveitinni taki duglega þátt í því starfi og kynnist mismunandi fjáröflunum. Á síðustu árum hefur HSSR meðal annars selt flugelda og Neyðarkall, sinnt viðhaldi á gönguleiðum á Hengilssvæðinu, sinnt gæslu á kappleikjum á Laugardalsvelli, sett saman og skotið upp flugeldasýningum auk annarra verkefna sem sveitin tekur að sér að annast.

Hafir þú spurningar sem ekki er svarað hér getur þú sent okkur póst á nylidar@hssr.is.