A1 ferð um fannir

Laugardaginn 17. mars skíðuðu 6 félagar í A1 frá Meyjarsæti, austan í Ármannsfelli í Þingvallasveit, sem leið lá að Hvalfelli í vesturátt og niður í Botnsdal með Hvalvatnsá. Veður skipaðist á með éljum. Færið var púðrað og skyggni milli élja stórkostlegt. Leiðin var rúmir 25 km.
Félagar í A1 mæla með skíðagöngum sínum.

—————-
Texti m. mynd: Hvalfell nálgast
Höfundur: Anna María Lind Geirsdóttir