Frágangur eftir flugeldasölu

Flugeldasalan gekk vel, það gekk vel að manna söluna, salan var góð og skipulagið gott. Núna á fimmtudag verða seldir flugeldar og jafnframt hefst frágangur eftir sölu. Stjórn og flugeldanefnd vill hvetja sem flesta félaga til að mæta, frágangur felst í því að telja og ganga frá vöru, koma byrgðageymslu í samt lag, laga til á efri hæð, taka saman og flokka hillur og svo framvegis. Það er næg vinna fyrir margar hendur. Sjáumst á fimmtudag

—————-
Höfundur: Haukur Harðarson