Hjálparsveit skáta í Reykjavík var stofnuð 1932 og er í dag ein stærsta björgunarsveit landsins. Hún er aðili að Slysavarnafélaginu Landsbjörgu og er heildarfjöldi félaga um 300. Útkallskerfi sveitarinnar er virkjað af lögreglu og er sveitin hluti af kerfi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Sveitin er landbjörgunarsveit og miðast búnaður og þjálfun við það. Félagar skiptast í hópa eftir áhugamálum hvers og eins. Gefin er út dagskrá með yfirliti yfir æfingar, ferðir og fyrirlestra auk annarra liða. Fyrir utan nýliðadagskrá eru hvert ár farnar fjölmargar ferðir á vegum útkallshópa auk almennra ferða.
Sjö manna stjórn er yfir starfsemi HSSR, en mikil áhersla er lögð á sjálfstæði og frumkvæði útkallshópa og félaganna sjálfra. Sveitin er að mestu rekin fyrir sjálfsaflafé og er fjáröflun því stór hluti af starfi félaga og nýliða. Húsnæði sveitarinnar er að Malarhöfða 6 og er það um 1.200 m2 að stærð. Þar er búnaður sveitarinnar geymdur, en hún er vel tækjum búin.