Í góða veðrinu í dag, fimmtudag 5. september, verður farin kynningargönguferð á Helgafell. Þar mæta bæði félagar í HSSR og nýliðar sem eru að hugsa um að hefja þjálfun í haust. Þægilegur göngutúr þar sem nýliðar byrja að kynnast hver öðrum og einnig félögum í sveitinni.
Mæting á Malarhöfða 6 og brottför kl. 18:00. Farið á bílum HSSR og einkabílum ef þörf er á.
Fyrsta námskeið nýliða hefst síðan miðvikudagskvöld 11. september og þá rennur einnig umsóknarfrestur út. Umsóknarformið er hér.
Kynningarbæklingur er hér.