Laugardaginn 22. nóvember verður farin dagsferð á Skeggja í Hengli. Lagt verður af stað frá Malarhöfða kl. 0900 og ekið í Dyradal. Þaðan verður gengið um Kýrdalsbrúnir eða Kýrdalshrygg upp á Skeggja, vesturbrúnir Hengils síðan þræddar og endað niður í Sleggjubeinsskarði. Væntanlega komið heim undir kl. 17. Allur venjulegur vetrarbúnaður áskilinn ásamt góða ferðaskapinu. Fararstjórar búa yfir varaáætlun ef veður hamlar hinni upphaflegu. Vinsamlega skráið ykkur á korkinn eða með tölvupósti á hssr@hssr.is í síðasta lagi miðvikudaginn 19. nóv.
Eftirbátar.
—————-
Texti m. mynd: Vegvísar á Hengilssvæðinu
Höfundur: Hlynur Skagfjörð Pálsson