Aðalfundur 2003

S.l. þriðjudag var haldinn aðalfundur Hjálparsveitar skáta í Reykjavík (HSSR). Helstu tíðindi eru þau að breyting er orðin á skipan stjórnar HSSR. Í stað Kristins Ólafssonar, fráfarandi sveitarforingja kemur Einar Daníelsson og Hallgrímur Magnússon tekur sæti meðstjórnenda í stað Haralds Þorbjörnssonar. Núverandi stjórn er því nú eftirfarandi;

Einar Daníelsson, sveitarforingi,
Óskar Helgi Guðjónsson, aðst. sveitarf.,
Hallgrímur Magnússon, ritari,
Guðbjörg Árnadóttir, gjaldkeri,
Arngrímur Blöndahl, meðstjórnandi,
Páll Ágúst Ásgeirsson, meðstjórnandi,
Þorvaldur Gröndal, meðstjórnandi,

—————-
Texti m. mynd: Kristinn Ólafsson þiggur blómvönd
Höfundur: Stefán P. Magnússon