Hvannadalshnjúkur um helgina.

Stefnt er að uppgöngu á Hvannadalshnjúk næstkomandi laugardag.
Brottför frá M6 kl. 18.00 á föstudag og gert ráð fyrir heimkomu um miðjan dag á sunnudag.
Ferðaplan gæti breyst eftir veðri en það verður í samráði við hópinn.
Þeir sem þegar hafa skráð sig eru beðnir að staðfesta á netfangið rantoniussen@gmail.com og aðrir þeir sem áhuga hafa á að slást í hópinn eru beðnir um að gera hið sama fyrir kl. 16. á fimmtudag.

—————-
Texti m. mynd: Úr ferð HSSR á Hvannadalshnjúk sl. vor.
Höfundur: Hlynur Skagfjörð Pálsson