Ísklifurnámskeið í Gígjökli

Þrátt fyrir andstyggðarveður í bænum síðastliðinn laugardag (5. okt.) þá var þetta fína veður í Gígjökli. En þar fór einmitt fram ísklifurnámskeið fyrir nýliða II. 12 þátttakendur mættu og 8 leiðbeinendur.

Ef einhverjir eiga myndir á tölvutækuformi af námskeiðinu, endilega sendið þær þá á hssr@hssr.is, þær mega ekki vera stærri en 350 pixelar.

Skoðið fleiri myndir undir HSSR-Myndir og skoðið einnig linkinn sem kemur fram hér að neðan, en hann er á síðuna hans Baldurs sem er í nýliðum II.

—————-
Vefslóð: hi.is/~baldug/isklifur
Höfundur: Stefán Páll