Ísland – Holland Laugardaginn 6. júní

Það er búist við fullum velli og því verður þetta ein af stærri fótboltagæslum sumarsins. Leikurinn hefst kl. 18.45 en við þurfum að mæta frá kl. 16.00. Hægt er að mæta aðeins síðar ef þið hafið ekki tök á að mæta kl. 16.00. Skráning er hafin á korknum en einnig er hægt að senda póst á hssr@hssr.is ef þið hafið ekki lykilorð á korkinn. Vinsamlega takið fram ef þið getið ekki mætt kl. 16.00 og þá hvenær þið mætið. Mæting er á Laugardalsvöll, vestin verða á staðnum og talstöðvar. .

—————-
Höfundur: Haukur Harðarson