Klifurkeppni á mánudagskvöld.

Mánudaginn 23. nóvember verður haldið langþráð klifurmót í veggnum á M6. Veglegir vinningar í boði Útilífs í Holtagörðum og að sjálfsögðu er öllum velkomið að taka þátt, nýliðum sem og fullgildum. Keppt verður í einstaklings- og liðakeppni þar sem 3 eru saman í liði. Veitt verður forgjöf svo að allir eiga séns á að sigra! Liðakeppnin hefst 19.00 en einstaklingskeppnin kl. 20.30 Takið kvöldið frá og missið ekki af fyrsta klifurmóti ársins!

Skráning fer fram á hljonasdottir (hjá) gmail.com

—————-
Texti m. mynd: Veglegir vinningar í boði Útilífs í Holtagörðum.
Höfundur: Hlynur Skagfjörð Pálsson