Klifurmót fimmtudaginn 27. október kl. 20:00

Fyrsta klifurmót vetrarins verður haldið í HSSR Weggnum fimmtudaginn 27. október nk. kl. 20:00.
Í boði verða að öllum líkindum þrjár keppnisleiðir af öllum erfiðleikagráðum og því við allra hæfi, hvort sem menn klifra 5.5 eða 5.13.
Fyrirkomulag verður að öðru leyti kynnt betur þegar mótið hefst.

Gildir til stiga í heildarstigakeppni sem verður keyrð á fjórum fyrirhuguðum klifurmótum vetrarins (2 mót fyrir áramót og 2 eftir árarmót).

Ekki láta þetta frábæra tækifæri úr greipum renna. Þetta verður rífandi stemmning.

Allir að mæta og ekki hugsa smátt – hugsa ÞYNGDARLEYSI…

—————-
Höfundur: Sigurður Tómas Þórisson