Klifurnámskeið

Þriðjudaginn 27. maí héldu undanfarar fyrri hluta klifurnámskeiðs fyrir nýliða. Brunað var í Eilífsdal og farið yfir klifurtækni og klifurferlið. Þá var Valshamar þuklaður fram eftir kvöldi. Sem fyrr sýndu nýliðar snilldartakta.

Seinni hluti námskeiðsins verður haldinn í kvöld en þá verður fjallað um bergtryggingar og línuvinnu.

Myndir á myndasíðu um leið og hún kemst í lag.

—————-
Höfundur: Jóhanna Katrín Þórhallsdóttir