Nýr félagi í HSSR.

Á stjórnarfundi í gærkvöldi var tekinn inn nýr félagi í HSSR.
Þorbjörg Hólmgeirsdóttir hóf nýliðaþjálfun hjá HSSR haustið 2009 og er ein fárra sem að hefur lokið sinni þjálfun með fullu húsi stiga og athugasemdalausri toppmætingu.
Þar sem Þorbjörg verður stödd erlendis næsta þriðjudagskvöld þegar félagar hennar úr N2 munu flestir ganga inn í sveitina, var gerð sú undantekning að taka hana inn á stjórnarfundi.

Við erum ánægð með liðsaukann og óskum Þorbjörgu til hamingju með áfangann.

—————-
Texti m. mynd: Foringinn og sætasta stelpan á ballinu.
Höfundur: Hlynur Skagfjörð Pálsson