Sumarið er komið

Fótboltagæslan er hafin og um helgina var önnur gæsla sumarsins. Einnig er verið að leggja lokahönd á samning um stikuverkefni á Hellisheiði við Orkuveitu Reykjavíkur. Bæði þessi verkefni hafa verið fastaverkefni mörg undanfarin ár og mikilvægt fyrir okkur að þrátt fyrir erfiða tíma hafi verið ákveðið að endurnýja samninga um þau. Stjórn sveitarinnar hvetur félaga til að taka þátt í þessum verkefnum eins og öðru starfi sveitarinnar. Margar hendur og allt það.

—————-
Höfundur: Haukur Harðarson