Tiltektarkvöld þriðjudaginn 25

Mikið hefur gengið á í húsnæðinu okkar í sumar. Skápum hefur verið fjölgað, skóhillum komið fyrir, rými í húsinu máluð og svo framvegis. Einnig hefur nokkur vinna verið lögð í tiltekt og þrif. Þriðjudagskvöldið 25.ágúst verður lokasnurfus. Allir sem hafa getu og vilja til að mæta eru hvattir til að láta sjá sig. Byrjum kl. 20.00 og verðum búin kl. 22.00. Verkefnastjóri verður Haukur Harðarson.

Einnig vil ég nota tækifærið og þakka öllum þeim félögum sem komu að verkefnum tengdum Menningarnótt fyrir þeirra framlag. Vel gekk að manna alla pósta og þessi vinna skiptir okkur miklu máli fjárhagslega. Takk.

—————-
Höfundur: Haukur Harðarson