Dagskrá næsta vetur

Nú stendur yfir vinna við starfsáætlun fyrir næsta vetur.Útkallshópar hafa verið beðnir um að senda sín upplegg inn og nýliðateymi er að leggja lokahönd á dagskrá. Síðan verður allt samræmt og fíneserað og dagskrá kynnt á sveitarfundi í september. Ef þú hefur hugmyndir um ferðir, námskeið eða annað sem þú telur eiga erindi inn á dagskrá HSSR sendu þá þína hugmynd á hssr@hssr.is eða stefan@assan.is

Við höfum stundum rætt það að það værir gott að fá fyrirlestra, námskeið eða fræðslukvöld fyrir fullgilda félaga. Nú er tíminn til að koma hugmyndum á framfæri.

—————-
Höfundur: Haukur Harðarson