Breytingar hjá bílaflokki

Eins og margir eflaust vita þá er hann Rúnar að byggja. Húsbyggingum fylgir mikil vinna og þess vegna þarf hann að minka störf sín fyrir HSSR vonandi aðeins tímabundið. Stjórnin hefur því ákveðið að skipa Snorra Halldórsson tímabundið umsjónarmann bílaflokks. Kristinn Ólafsson mun vera tengiliður stjórnar við bílaflokk og vera Snorra innan handar. Stjórnin beinir því til félaga HSSR að vera tímanlega í sambandi við Snorra um allt akstursskipulag. Stjórnin óskar Snorra og bílaflokknum öllum góðs gengis á komandi vetri en bílaflokkurinn er vel mannaður um þessar mundir og mikli og góð stemmning á miðvikudögum.
Stjórnin

—————-
Höfundur: Kristinn Ólafsson