Nýr félagi í Hjálparsveit skáta í Reykjavík Á stjórnarfundi þann 4. febrúar sl. skrifaði Ásmundur Jónsson undir eiðstaf HSSR. Starfaði hann áður með Björgunarfélaginu á Akranesi. Við bjóðum Ásmund hjartanlega velkominn til starfa.