Að þessu sinni verður sjónum beint að öryggi í vetrarferðum í víðu samhengi, s.s. í þéttbýli, á almennum vegum og utan alfaraleiða.
Lagt er mikil áhersla á að fólk hugi betur að öryggi í ferðalögum að vetri til, vandi betur undirbúning og geri ferðaáætlun, til dæmis á: www.safetravel.is
Í tilefni 112 dagsins heldur Hjálparsveit skáta í Reykjavík opið hús að Malarhöfða 6 þriðjudaginn 11. febrúar kl. 20 – 22.
Verið velkomin að kíkja við og fræðast um starf hjálparsveitarinnar.