Nú um helgina hélt vaskur hópur nýliða ásamt undanförum og undanrennum upp í Skarðsheiði að nema fjallamennskufræði. Lagt var af stað af Malarhöfðanum rétt fyrir dagrenningu á laugardeginum.
Stefnan var á skálina vestan við Skessuhorn og fann hópurinn ákjósanlegt tjaldstæði við Katlana rétt undir Horninu. Þar var slegið upp tjaldbúðum og svo haldið í ísaxarbremsuæfingar og broddagöngu. Aðstæður voru með besta móti; gott veður og glerhart hjarn.
Allir hópar voru svo komnir aftur niður rétt fyrir sólsetur. Fólk kom sér fyrir í tjöldum sínum, eldaði kvöldmat og hélt sátt og satt í háttinn eftir langan dag.
Sunnudagurinn hófst einnig um við sólarupprás. Eftir morgunmat héldu hóparnir aftur upp í ísilagðar hlíðar og fengust við snjótryggingar og sitthvað fleira. Að því loknu voru tjaldbúðirnar teknar niður og haldið heim.
Danni og Matti fá þakkir fyrir að aka hópnum inn og út.
- Skessuhorn í augsýn.
- Klofað yfir sprænur.
- Sum fljótin voru breiðari en önnur en öll meira og minna frosin yfir.
- Tjaldbúðir reistar.
- Tjaldbúðir undir Skessuhorni.
- Veggir og tjöld reist.
- Hér fundum við hina ágætustu ísaxarbremsubrekku.
- Biti borðaður og broddar festir undir bomsur.
- Haldið upp í hlíðarnar.
- Hress hópur.
- Ekki amaleg kennslustofa.
- Haldið niður í tjaldbúðir.
- Stuttur morgunmatur áður en haldið er aftur upp í Heiðina.
- Guðjón ætíð kátur.
- Uppi á Skarðsheiðinni.
- Sjótryggingar.
- Snjótryggingar.
- Ottó, Unnar, Guðjón og Davíð á góðri stundu.
- Tinni, Magnús, Benni, Valgerður, Ásdís og Kári áður en haldið var aftur niður.
- Magnús á Skessuhorni.
- Valgerður sígur niður.
- Hópurinn á niðurleið.
- Samantekt fyrir brottför.
- Samantekt fyrir brottför.
- Samantekt fyrir brottför.
- Umsjónarmenn námskeiðisins.
- Guðrún Hrund og Ylfa.
- Hópurinn á heimleið.
- Komin á bílastæðið.
- Flottasta peysan.
- Matti kominn að sækja liðið.
- Esjan tekur á móti Reykvíkingunum.