Klettaklifurnámskeið

Klettaklifurnámskeið verður haldið í næstu viku. Kennt verður þriðjudaginn 29. og fimmtudaginn 31. maí, og er mæting kl. 17:30 á M6 en áætluð heimkoma um kl. 22. Til að ljúka námskeiðinu þarf að mæta báða dagana (athugið að námskeiðið er með öðru sniði en áður var auglýst).

Námskeiðið er skylda fyrir Nýliða 1 sem búnir er með námskeið í fjallamennsku en er að sjálfsögðu opið öllum öðrum félögum sveitarinnar sem vilja bæta klifurkunnáttuna og hræðast eigi þrítugan hamarinn. Á námskeiðinu verða reyndar og prófaðar aðferðir og tæki til að tryggja í bergi, jafnt fyrir millitryggingar og megintryggingar. Farið verður yfir klifurferlið og allir munu reyna sig við klettana.

Mætið með belti, karabínur, sigtól og hjálm. Þeir sem eiga klifurskó, línur og bergtryggingar taka slíkt með. Og að lokum: Munið að hvítir hjálmar eru inni. Sem og svartar dúnúlpur.

—————-
Texti m. mynd: Í Stardal í maí 2006 (mynd: Gulldrengurinn)
Höfundur: Hálfdán Ágústsson

Klettaklifurnámskeið

Undanfarar minna á klettaklifurnámskeiðið sem verður haldið á laugardaginn, 20 maí. Við leggjum í hann frá M6 kl. 9 og höldum í Stardalinn. Seinnipart dags, líklega um kl. 17, skilum við öllum heilum á húfi aftur í bæinn.

Við sýnum og prófum helstu bergtryggingar, förum yfir öll öryggisatriði og æfum sig og létt klifur í alvöru aðstæðum. Námskeiðið er skylda fyrir nýliða en einnig tilvalið fyrir aðra sem hafa gaman af prílinu og vilja rifja upp gamla klifurtakta sem og æfa tryggingar og sig.

—————-
Texti m. mynd: Kristján X vs. Gulli I
Höfundur: Hálfdán Ágústsson