Leit að stúlku á höfuðborgarsvæðinu

HSSR félagar voru kallaðir út um klukkan 21:30 í kvöld til leitar að ungri stúlku er saknað var í Reykjavík. 19 félagar HSSR tóku þátt í leitinni. Stúlkan fannst rúmum klukkutíma eftir að leit hófst og var hún heil á húfi.

—————-
Höfundur: Helgi Reynisson