Miðakaup á árshátíð

Nú má fara að borga árshátíðarmiðann sinn. Það gerirðu með því að leggja kr. 3.500 fyrir hvern miða inn á reikning 0311-26-002729, kennitala 521270-0209. Athuga að sá sem leggur inn skráist sem greiðandi, ef innborgun þarfnast frekari skýringa sendið þær á netfangið orngud@hotmail.com. Borga í allra síðasta lagi á fimmtudaginn.

Til upprifjunar:

Árshátíð HSSR verður haldin 7. nóvember næstkomandi.
Skemmtilegt kvöld sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Gleðin hefst með fordrykk kl. 19, hlaðborð sem svignar undan kræsingum,
skemmtiatriði að hætti sveitarinnar, happdrætti og dans fram eftir nóttu.

Félagar nú er að pússa spariskóna, skella makanum í betrifötin
(auðvitað er þeim boðið líka) og eiga fjörugt kvöld saman.

Forskráning fer fram á korknum (til að gera okkur grein fyrir fjölda, hversu mikið á að slátra og veiða).
Gleðin fer fram að Stangarhyl 3A í sal Samhjálpar.

Miðaverð er kr. 3.500.- per mann

—————-
Texti m. mynd: Borga borga !
Höfundur: Örn Guðmundsson