Mynd á nýárskort HSSR 2010

Heil og sæl

Senn líður að jólum og er stjórnin farin að huga að nýárskortum sem HSSR sendir út ár hvert. Kortið hefur skartað mynd úr starfi sveitarinnar. Nú er hafin leit að MYNDINNI í ár. Langar mig að leita til félaga HSSR sem eru viljugir til að láta mynd af hendi til opinberra birtingar og finna 1-2 góðar myndir (í stórri og góðri upplausn) í fórum sínum þar sem félagar sjást í starfi og leik í fullum herklæðum og ekki verra að hafa nokkur tæki í kring. Myndin sendist á netfangið helga@landsbjorg.is
Undirrituð sem er ritar stjórnar mun svo velja eina mynd sem verður prentuð á kortið og að sjálfsögðu mun nafn eigenda myndarinnar koma fram á baksíðu kortsins.
Með von um góð viðbrögð
Helga Björk

—————-
Höfundur: Helga Björk Pálsdóttir