Slysavarnardeild kvenna flytur inn

Fimmtudaginn 14. janúar mun Slysavarnardeild kvenna í Reykjavík halda fund í salnum hjá okkur. Í beinu framhaldi mun deildin flytja starfsemi sína á M-6. Um tímabundin flutning er að ræða meðan verið er að stækka og breyta Gróubúð þar sem sem deildin mun deila húsnæði með Björgunarsveitinni Ársæl. Ekki liggur fyrir tímaáætlun á framkvæmd en skotið er á tvö ár. Auk þess að nota sal og fundarsal er gert ráð fyrir að þær nýti þriðju hæð að hluta.

—————-
Höfundur: Haukur Harðarson