Sveitarfundur – Handbolti – Pizzur

Þriðjudaginn 30. janúar verður sveitarfundur og samkvæmt dagskránni hefst hann kl. 20.00. Nú er það svo að klukkan 19.00 hefst leikurinn Ísland – Danmörk í átta liða úrslitum á HM í handbolta.
Því stendur eftirfarandi til boða. Bein útsending frá leiknum ásamt pizzum og gosi á Malarhöfðanum og sveitarfundur í beinu framhaldi. Er gert ráð fyrir allt að 15 mínútna frestun á honum meðan Danirnir verða kláraðir.

Áfram Ísland

—————-
Höfundur: Haukur Harðarson