Snjóflóðanámsstefna

Snjóflóðanámsstefna
24.-25. febrúar 2007

Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Hjálparsveit Skáta Kópavogi og ORION Ráðgjöf ehf standa fyrir komu tveggja snjóflóðasérfræðinga frá Alaska seinnihluta febrúar n.k. Þetta eru þau Jill Fredstone og Doug Fesler en þau hafa um langa hríð verið ein þau fremstu á sínu sviði í Norður Ameríku og jafnvel þó víða væri leitað.

Dagana 24. og 25. febrúar n.k. munu þau vera með fræðslu fyrir björgunarsveitarfólk og aðra sem kunna að hafa áhuga á snjó, snjóflóðum og snjóflóðabjörgun.

Nánari upplýsingar má finna á vef Slysbjargar

—————-
Vefslóð: landsbjorg.is/ymis/snjoflod2402.htm
Höfundur: Brynja Björk Magnúsdóttir