LJÓSMYNDASAMKEPPNI

Í tilefni af afmælisári sveitarinnar hefur verið ákveðið að standa fyrir ljósmyndasamkeppni. Keppt verður í þremur flokkum- athugið að hver flokkur hefur meira en einn vinkil…

Á YSTU NÖF
ÖLL VEÐUR HAFA EITTHVAÐ
SYNGJANDI SVEIFLA

Verðlaun eru veitt fyrir fyrsta sæti í hverjum flokki, en ýmis bónusverðlaun verða einnig í boði, sem ekki verður greint frá fyrr en að úrslitum loknum. Verðlaunamyndirnar þrjár verða stækkaðar og hengdar upp á Malarhöfðanum. HSSR áskilur sér rétt til þess að nota myndirnar við ýmis tækifæri, til að mynda í kynningarefni. Öllum félögum sveitarinnar og nýliðum er boðið að senda inn myndir. Fimm manna dómnefnd mun ráða úrslitum keppninnar, skipuð skátum af öllum gerðum.

Reglurnar eru eftirfarandi:

– Viðkomandi þarf að geta sýnt fram á höfundarétt.
– Innsendar myndir mega að hámarki vera 1 MB, ekki stærri en 1200 x 1000 pixlar, hvort heldur skönnuð eða rafræn að uppruna.
– Tekið skal fram hvar og hvenær myndin er tekin og hverjir prýða hana.
– Tilgreinið á hvaða vél myndin er tekin og hver myndvinnslan er.
– Hver þátttakandi má senda inn fleira en eina mynd í hverjum flokki.
– Myndum skal skilað inn fyrir 28. febrúar á netfangið hrafnha@gmail.com.
– Minnt er á námskeið í stafrænni ljósmyndun 20. febrúar, upplagt tækifæri til þess að læra að taka verðlaunamyndir! En myndir frá síðustu öld eru sérstaklega velkomnar í keppnina.

Hrafnhildur og HannaKata

—————-
Höfundur: Hrafnhildur Hannesdóttir