Fjölskylduferð Hssr

Hvannadalshnjúkur með Hssr

Nýliðateymið hefur verið fengið til að leiða Hssr fjölskylduna á Hvannadalshnúk núna næstkomandi helgi, til að ljúka á skemmtilegan hátt nýliðastarfinu í ár

Það er von þess að þetta verði að góðri hefð, þar sem nýrri og eldir félagar skemmta sér á fjöllum, borði góðan mat við niðurkomu og að gleðin skíni úr hverju andliti

Eldri félagar eru sérstaklega hvattir til að mæta, enda góð leið til að sýna á einlægan hátt hvernig stemmningin er innan Hssr

Skráning er hafin á korki sveitarinnar

sjáumst þar
kv nýliðateymið

—————-
Texti m. mynd: mynd n.n
Höfundur: Árni Þór Lárusson