7 tinda hlaup

Skátafélag Mosverja, Björgunarsveitin Kyndill og Mosfellsbær eru að fara af stað með víðavangsþrekhlaup laugardaginn 13. júní. Þetta hlaup er tilvalið fyrir undanfara, Laugavegsfara og aðra er hafa gaman af erfiðum víðavangshlaupum og vilja komast í nýtt landslag til að þjálfa sig í. Leiðin sem farin verður er bæði þægileg, erfið og krefjandi, slóðar, grófir melar, mýrar, sandar og brattar brekkur.

Þau ykkar sem hafið áhuga er velkomið að kíkja á http://www.kyndillmos.is, http://www.mosverjar.is, http://www.mos.is eða http://www.hlaup.is.

—————-
Höfundur: Haukur Harðarson