Ísklifurnámskeið 2008

Næstkomandi laugardag eða þann 20. september verður haldið ísklifurnámskeið í boði Undanfara. Námskeiðið er skylda fyrir Nýliða 2 en jafnframt opið öðrum meðlimum sveitarinnar.

Staðfesta skal mætingu í formi tölvupósts á gulli [hjá] penninn.is eigi síðar en 23:30 fimmtudaginn 18. september.

Brottför er kl. 7:00 frá M6. Áætlað að vera komin heim í tæka tíð fyrir síðbúinn kvöldmat.

Hefðbundinn útivistar- og klifurbúnað þarf að hafa með í för auk mannbrodda og ísaxarpars.

Undanfarar HSSR

—————-
Texti m. mynd: Undanfarar í ísklifri undir Eyjafjöllum.
Höfundur: Guðlaugur Ingi Guðlaugsson