Riaan Manser fyrirlestur 17. mars

Riaan Manser sem ætlar að róa við annan mann á tveggja manna kayak í kringum Ísland núna í mars tekst greinilega á við verkefni í stærri kantinum. Hefur nú þegar hjólað hringinn kringum Afríku og róið kringum Madagaskar sem er 6 sinnum stærri en Ísland. Hann er að leggja af stað í hringróður um Ísland og hefur enginn reynt það fyrr að vetri til. Fimmtudaginn 17. mars mun hann halda fyrirlestur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefst hann kl. 19:30. Þar mun hann segja frá hringferð sinni um Madagaskar. Öllum sem hafa áhuga á verkefninu er velkomið að mæta og hlusta á kappann.

—————-
Höfundur: Guðmundur Jón Björgvinsson