Sveitarfundur HSSR verður haldinn þriðjudaginn 19. mars næstkomandi Malarhöfða 6. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og eru allir félagar hvattir til að mæta.
Dagskrá fundarins er:
- Útkallsmál, mæting og uppbygging útkallslista
- Skýrsla stjórnar
- Peningamál sveitarinnar
- Dagskrá og stefnan í henni næsta árið
- Ný heimasíða sveitarinnar
- Siðareglur HSSR
- Innganga nýrra félaga
- Birgir Blöndahl verður með kynningu á ferð sinni suður um höf
N2 munu sjá fyrir glæsilegum veitingum í hléi!
Stjórn hvetur alla félaga sem nýliða til að fjölmenna á fundinn!