Sveitarfundur Hjálparsveitar skáta í Reykjavík verður haldinn þriðjudaginn 28. janúar 2020, klukkan 19:00, í húsnæði sveitarinnar að Malarhöfða 6.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Sveitarforingi skipar fundarstjóra og fundarritara.
- Inntaka nýrra félaga.
- Skýrsla um starfsemi sveitarinnar frá síðasta sveitarfundi.
- Starfsáætlun til næsta sveitarfundar.
- Önnur mál.
Það verður örugglega talað um húsnæðismál og því er mjög sniðugt að mæta ef menn hafa eða vilja mynda sér skoðun á því.