BANFF film festival

Íslenski alpaklúbburinn heldur árlega alþjóðlegu fjalla- og útivistarhátíðina BANFF Film Festival nú í maí. Þar eru sýndar bestu stuttmyndir ársins af afrekum og ævintýrum einstaklinga sem stunda jaðaríþróttir á borð við fjallamennsku, snjóbretti, fjallahjól, klifur, skíði, kajak, base jump og fleira. Myndefnið er mikið sjónarspil og er frábær skemmtun fyrir alla sem una útivist en ekki síður fyrir þá sem vilja fylgjast með úr fjarska og kjósa örugg og þægileg sæti…

Hátíðin verður nú haldin í Bíó Paradís og er vonast til þess að ná til breiðari hóps áhorfenda, enda myndefni sem getur fyllt marga eldmóði.

Allar nánari upplýsingar um viðburðinn, ásamt kynningarmyndbandi og dagskrá, má finna hér: www.isalp.is/banff.

—————-
Höfundur: Haukur Harðarson