Búum til betri leiðbeinendur

Miðvikudagskvöldið 7. október frá kl. 20.00 til 22.15 verður haldið á M6 námskeiðið Búum til betri leiðbeinendur. Námskeiðið er ætlað þeim HSSR félögum sem hafa áhuga á því að leiðbeina nýliðum og öðrum.
Farið verður yfir helstu atriði sem þarf að hafa í huga þegar fullorðnum einstaklingum er leiðbeint, hvaða aðferðir henta best, einfaldar leiðir til að meta einstaklinga, verkefnavinnu og námsgögn.
Leiðbeinendur verða Haukur Harðarson og Helga Björk Pálsdóttir en þau hafa bæði mikla reynslu í því að leiðbeina fullorðnu fólki.

Vonumst til að sjá ykkur sem flest – Skráning er á KORKNUM

—————-
Höfundur: Haukur Harðarson