Category Archives: Fréttir

Flugslysaæfing – Viðbragðsáætlun Keflavíkurflugval

Í dag 5. maí héldu 13 félagar úr HSSR til Keflavíkur þar sem stór flugslysaæfing var haldin. Æfingin er haldin í kjölfar þess að viðbragsðáætlun fyrir flugvöllin hefur verið endurgerð. Um þrjú ár eru síðan slík æfing hefur verið haldin syðra. Æfing sem þessi hefur gríðarlega þýðingu þar sem hún sýnir fram á virkni áætlunarinnar þegar á þarf að halda. Reynt er að líkja fullkomlega eftir raunverulegu flugslysi til að þjálfa fólk í erfiðum aðstæðum. Þeir sem tóku þátt í æfingunni eru björgunarsveitir, slökkvilið, lögregla og heilbrigðisstarfsmenn af öllum Suðurnesjum, og fleiri, auk mannskapar frá Reykjavík, þar á meðal HSSR. Við sendum tvo sex manna björgunarhópa á 2 bílum (R1 og R4) á staðin. Óli Jón var sem fyrr mættur á myndavélina og fylgdi okkur hvert fótmál. Hópar héldu áleiðis í Straumsvík um kl 10:20 en um svipað leiti var fyrsta boðun útkallsins hækkuð úr hættustig gulur —> í neyðarstig gulur. Við lentum í Straumsvík skömmu fyrir ellefu en vísað rakleitt áfram á móttökusvæði í Keflavík.
Á keflavíkurflugvelli sinntum við margvíslegum verkefnum. Á slysstað fékk okkar fólk umsjón yfir bæði söfnunarsvæði sjúklinga sem voru að fara í flutning og einnir settir í gæslustörf. R1 flutti 1 sjúkling á börum og 6 sitjandi einstaklinga frá slysstað yfir á Söfnunarsvæði slasaðra (SSS) í einni ferð og sannaði þar enn og aftur notagildi sitt í stærð og flutningsgetu. Í kjölfarið var okkur úthlutað verkefnum á SSS, bæði sett í áverkamat og aðhlynningu slasaðra, flutning á allavega 3 sjúklingum á börum niður í Heiðarskóla (sem var ígildi sjúkrahúss á æfingunni), bæði á R1 og R4.

Æfingin heppnaðist í alla staði vel og var ánægja meðal þátttakenda með sína aðkomu að deginum. Eftir æfingu var rýnifundur í Heiðarskóla þar sem stjórnendur verkþátta gáfu yfirlit yfir hvernig gengið hefði.
Á leiðinni í bæinn spruttu upp fjörugar umræður í báðum hópum um hvað betur mætti fara sem héldu áfram á M6 og dagurinn tekinn saman. Þar var tekin sú ákvörðun að senda út blað á þáttakendur frá okkar hóp til að koma með ábendingar í sitthvoru lagi. Stefnum á að vinna úr þeim upplýsingum í kjölfarið og taka þær saman í eitt skjal og senda á viðeigandi aðila þann lærdóm sem okkur finnst að megi draga af þessari æfingu.
Sjúkrahópur HSSR stóð sig með príði og fær þakkir fyrir að mæta og taka þátt.

—————-
Texti m. mynd: Mynd af SSS-þar má glöggt sjá nokkra úr okkar hóp.
Höfundur: Helgi Þór Leifsson

Þyrluæfing með TF-LÍF

Fimmtudagskvöldið 3.mai tóku félagar í fjallahóp og búðahóp þátt í æfingu með þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-LÍF. Gekk æfingin mjög vel og lærðu félagar heilmikið um hvernig það er að umgangast þyrlu í raunveruleikanum.

Fjallahópur bjó sjúklinga til flutnings í þyrlunni og var þeim síðan flogið frá Hafravatni upp á Úlfarsfell þar sem tjaldi sveitarinnar ( sem hafði verið selflutt upp á Úlfarsfell ásamt mannskap ) var tjaldað á mettíma eða 6 mínútum.

Ekki spillti fyrir að rjómablíða var allan tímann sem gerði þessa upplifun bara skemmtilegri.

—————-
Höfundur: Sigríður Gyða Halldórsdóttir

Nýr framkvæmdastjóri ráðin hjá SL

Guðmundur Örn Jóhannsson markaðsráðgjafi hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Guðmundur Örn hefur frá árinu 2005 verið sjálfstætt starfandi markaðsráðgjafi og hefur unnið ýmis verkefni, m.a. fyrir Slysavarnafélagið Landsbjörg, erlenda aðila, stjórnmálaflokka og félagasamtök. Áður var hann markaðs- og kynningarstjóri hjá SÁÁ, framkvæmdastjóri Ítalska verslunarfélagsins og sölustjóri hjá Stöð 2, svo fátt eitt sé nefnt. Guðmundur hefur meðal annars séð um skipulagningu og stýringu á sölu Neyðarkalli björgunarsveitanna frá upphafi
Maki Guðmundar er Íris Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri og eiga þau tvö uppkomin börn. Guðmundur kemur til starfa hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg um mánaðamótin apríl-maí.

—————-
Höfundur: Haukur Harðarson

Tveir fullgildir til viðbótar

Á stjórnarfundi í vikunni gengu tveir nýliðar inn í hjálparsveitina, þau Eva Margrét Kristinsdóttir og Gísli Björnsson. Eru þá 16 nýir fullgildir félagar búnir að bætast við frá áramótum.

—————-
Texti m. mynd: Eva Margrét, Haukur og Gísli
Höfundur: Einar Ragnar Sigurðsson

Fyrirlestur 11. apríl – High adventure

Velkomin(n) á fyrirlesturinn High Adventure með ævintýrakonunni Renötu Chlumska á vegum Félags Íslenskra FjallaLækna (FÍFL) og 66°NORÐUR í Háskólabíói miðvikudaginn 11. apríl 2012, kl. 20:00. Renata Chlumska er 39 ára þriggja barna móðir sem hefur verið útnefnd af Outdore Magazine sem ein af fremstu ævintýrakonum heims. Hún var fyrst sænskra kvenna að ná tindi Everestfjalls og hefur lagt að baki fjölda annarra tinda, m.a. Shishapangma (8006 m) án viðbótarsúrefnis. Afrek hennar eru ekki bundin við fjallgöngur heldur ná einnig til hjólreiða og siglinga, til dæmis hjólaði hún frá Nepal til Stokkhólms á 4 mánuðum. Árið 2005 hjólaði hún og reri á kajak yfir 48 ríki Bandaríkjanna en ferðin tók næstum eitt og hálft ár og voru þá 18.500 km að baki. Næsta haust verður hún fyrsta sænska konan til að ferðast út í geiminn.

Á undan fyrirlestri Renötu munu FÍFLin Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már Björnsson segja stuttlega frá nokkrum háfjallaperlum Íslands, m.a. göngu á Miðfellstind, Snækoll og Kverkfjöll. Einnig verður stutt kynning á nokkrum nýjungum frá 66°NORÐUR, þar á meðal verðlaunajakkanum Snæfelli og valdar flíkur verða seldar á staðnum með sérkjörum. Félagar HSSR velkomnir og aðgangur er ókeypis.

—————-
Höfundur: Haukur Harðarson

Mottulið HSSR

Nú er Mottumars lokið og alls safnaði mottulið HSSR 68.000 kr. Lengi vel var óttast að lið Hjálparsveitar skáta í Kópavogi yrði yfir okkur en þegar nálgaðist lok mánaðarins varð ljóst að ekki þyrfti að óttast það. Einnig voru í upphafi fréttir af mottulið frá fallhlífarhób FBSR.

Nú á eftir að koma í ljós hverjir af félögunum munu halda mottunum og hverjir munu raka þær af. Það er ljóst að í sumum tilvikum hefur kvennhyllismælirinn stigið en dalað hjá öðrum.

—————-
Höfundur: Haukur Harðarson

Fjölmennur sveitarfundur

Reglulegur sveitarfundur var haldin mars og var mæting mjög góð, yfir 100 félagar mættu. Á fundinum undirrituðu 15 félagar eiðstaf HSSR og urðu þannig fullgildir félagar í HSSR. Mikið gaman og mikið klappað. Af því tilefni gáfu þau HSSR gjafir, annarsvegar var um að ræða frystiskáp sem mun verða notaður undir útkallsmat einstaklinga og hins vegar Ipad spjaldtölvu sem fer í notkun í stjórnstöð. Mörg málefni voru undir þar með taldar skýrslur frá stjórn og ýmsum nefndum. Einnig var kynnt til sögunnnar við sérstakan fögnum Mottumarslið HSSR.

Á undan fundi var boðið upp á sushi af hópnum sem var að ljúka nýliðastarfi auk þess sem þau sáu um veitingar í kaffinu.

—————-
Höfundur: Haukur Harðarson

Fjallamennska 2

Fjallamennska 2 var haldin seinustu helgi í blíðskaparveðri. Á föstudagskvöldi var haldið inn í Botnsdal í Hvalfirði og stefnan tekin á Botnssúlur. Þrátt fyrir fínasta veður gekk ferðin hægt sökum þess að mikið af nýföllnum snjó var á svæðinu og þurfti oft að vaða snjó upp í mitti. Um 2 um nóttina var ákveðið að tjalda við Sandvatn og risu þá veglegar tjaldbúðir á svæðinu.
Á laugardagsmorgninum var mjög hvasst, líklega í kringum 15-18 m/s. Var það örlítið meira en við bjuggumst við svo við hringdum í veðurfræðing til að grennslast fyrir um veðurútlit dagsins. Þegar við heyrðum setninguna "tja, það á að byrja að hvessa um 3-leytið" funduðu allir leiðbeinendur (nema þeir 3 sem voru steinsofandi inní tjaldi) og var ákvörðun tekin um að halda til byggða. Héldum við þá rakleiðis ofan í Brynjudal þar sem brosandi bílahópsmenn tóku á móti okkur og ferjuðu okkur í bæinn. Tekin var ákvörðun um að fara í Bláfjöll stundvíslega kl 7 næsta morgun.
Veðrið á sunnudeginum var öllu skaplegra en daginn áður. Einungis hóflega hressilegur vindur og frost. Deginum var eytt í tæknilegar æfingar í Bláfellshálsi þar sem snjótryggingar og klifurferlið var masterað. Það voru svo hressir nýliðar sem að mættu á M6 eftir góða helgi. Fjöldamet var sett í gufunni að loknum frágangi þar sem öll sæti voru þétt setin, þrír stólar líka auk aðila sem stóðu á kantinum.
Takk kærlega fyrir glimrandi helgi!

—————-
Texti m. mynd: Arkitektar í skjólveggjahönnun
Höfundur: Daníel Másson

Fjallaskálinn Bratti er farinn á heilsuhæli.

Margt björgunarsveitarfólk á minningar úr skálanum Bratta í Botnssúlum.
Bratti 2 (Bratti 1 fauk) mátti orðið muna sinn fífil fegurri og því hafa um nokkurn tíma verið uppi hugmyndir um að senda hann á "heilsuhæli" til endurbyggingar.
Síðastliðinn laugardag var svo stokkið til þar sem aðstæður til fjallaskálaflutnings voru eimitt eins og bestar verða. Allfjölmennt lið björgunarsveitamanna á fimm snjóbílum smellti sér í Botnssúlur og niðurstaðan er sú að Bratti er kominn til höfuðborgarinnar um óákveðinn tíma.
Nánar má lesa um ferðalagið á heimasíðu ÍSALP: http://www.isalp.is/forum/5-almennt/12968-bratti-er-farinn-i-fri-myndir-og-fereasaga.html#12968 og nokkrar myndir má skoða hér: www.facebook.com/media/set/?set=a.339486…e=1&l=1ce8193ada

—————-
Texti m. mynd: Bratti á heimleið, dreginn af Bola auðvitað.
Höfundur: Hlynur Skagfjörð Pálsson