Fjallamennska 2

Fjallamennska 2 var haldin seinustu helgi í blíðskaparveðri. Á föstudagskvöldi var haldið inn í Botnsdal í Hvalfirði og stefnan tekin á Botnssúlur. Þrátt fyrir fínasta veður gekk ferðin hægt sökum þess að mikið af nýföllnum snjó var á svæðinu og þurfti oft að vaða snjó upp í mitti. Um 2 um nóttina var ákveðið að tjalda við Sandvatn og risu þá veglegar tjaldbúðir á svæðinu.
Á laugardagsmorgninum var mjög hvasst, líklega í kringum 15-18 m/s. Var það örlítið meira en við bjuggumst við svo við hringdum í veðurfræðing til að grennslast fyrir um veðurútlit dagsins. Þegar við heyrðum setninguna "tja, það á að byrja að hvessa um 3-leytið" funduðu allir leiðbeinendur (nema þeir 3 sem voru steinsofandi inní tjaldi) og var ákvörðun tekin um að halda til byggða. Héldum við þá rakleiðis ofan í Brynjudal þar sem brosandi bílahópsmenn tóku á móti okkur og ferjuðu okkur í bæinn. Tekin var ákvörðun um að fara í Bláfjöll stundvíslega kl 7 næsta morgun.
Veðrið á sunnudeginum var öllu skaplegra en daginn áður. Einungis hóflega hressilegur vindur og frost. Deginum var eytt í tæknilegar æfingar í Bláfellshálsi þar sem snjótryggingar og klifurferlið var masterað. Það voru svo hressir nýliðar sem að mættu á M6 eftir góða helgi. Fjöldamet var sett í gufunni að loknum frágangi þar sem öll sæti voru þétt setin, þrír stólar líka auk aðila sem stóðu á kantinum.
Takk kærlega fyrir glimrandi helgi!

—————-
Texti m. mynd: Arkitektar í skjólveggjahönnun
Höfundur: Daníel Másson

Fjallamennska 2

Örfáar myndir frá Fjallamennsku 2 eru komnar á myndasíðu HSSR.
Njótið heil og góða snjóhúsahelgi,

—————-
Texti m. mynd: Á göngu í Innstadal.
Höfundur: Hálfdán Ágústsson

Fjallamennska 2

Fjallamennska 2 var haldin síðastliðna helgi, 9.-10.febrúar.
21 nýliði ásamt 9 leiðbeinendum tóku þátt.
Farið var í Hengilinn, gengið upp Sleggjubeinsskarð yfir í Innstadal þar sem tjaldbúðum var komið upp, og daginn eftir var arkað yfir í Dyrdal.
Veðrið var með ágætum, fínasta rok og gekk á með élum.

Nýliðahópurinn stóð sig með eindæmum vel og þakka Undanfarar þeim samveruna þessa helgi.

—————-
Texti m. mynd: Dyrdalur
Höfundur: Brynja Björk Magnúsdóttir

Fjallamennska 2

Undirbúningsnámskeið fyrir fjallamennsku 1 og 2 verður haldið í kvöld 06/01 kl. 19:30 Skylda er fyrir alla nýliða að mæta hvort svo sem þeir mæti á námskeiðið eða ekki,farið verður í hvernig tjaldið skuli í snjó, hvernig haga skuli hægðum,hjálpsemi félaga,leit með snjóflóðaýli, ferli klifurs, snjótryggingar og sitthvað fleira. Nýliðar eru minntir á að reyna útvega sér búnað sem allra fyrst og vera búnir að pakka fyrir brottför á föstudagskvöldi.
Kv Undanfarar

—————-
Texti m. mynd: á góðum degi
Höfundur: Árni Þór Lárusson