Ert þú efni í Undanfara?

Hefur þú áhuga á að starfa með Undanförum?

Undanfarar eru 10-12 manna hópur innan HSSR sem sérhæfir sig í leit og björgun við erfiðar aðstæður, s.s. fjallabjörgun, sprungubjörgun og leit í fjalllendi.
Stöðug nýliðun á sér stað innan flokksins og er að jafnaði um 5 manna hópur í þjálfun hverju sinni sem tekur virkan þátt í öllu starfi að undanfaraútköllum undanskildum.

Ef þú hefur gaman af því að ferðast um brattlendi og jökla, hræðist ekki erfiðar aðstæður og vond veður…
Ef þú hefur brennandi áhuga á fjallafræðunum, vilt kunna að tosa í réttu spottana og ert forfallinn græjufíkill… Þá er þetta kannski málið fyrir þig.

Í þetta sinn eru 2 laus pláss en umsækjendur þurfa að hafa lokið fyrsta ári nýliðaþjálfunnar (Nýliðar II og lengra komnir). Í umsókninni þarf að koma fram meðal annars hversu mörg ár þú hefur verið í hjálparsveit, hvaða auka námskeiðum þú hefur lokið og hvers konar fjallamennskureynslu þú hefur. Athugið að í þjálfun með Undanförum er þess krafist að menn sæki sér stöðugt aukna fjallamennskureynslu á eigin vegum jafnframt því æfa með Undanförum.

Áhugasamir sendi tölvupóst á Danna á dam3(hjá)hi.is. Allar nánari spurningar um það hvað felst í starfinu eru mjög velkomnar.

Undanfarar

—————-
Texti m. mynd: Undanfara á Rigging
Höfundur: Daníel Másson

Ert þú efni í Undanfara?

Undanfarar eru 10-12 manna hópur innan HSSR sem sérhæfir sig í björgunum við erfiðar aðstæður, s.s. fjallabjörgun, sprungubjörgun og leit í fjalllendi.
Stöðug nýliðun á sér stað innan flokksins og er að jafnaði 3-5 manna hópur í þjálfun hverju sinni sem tekur virkan þátt í öllu starfi að undanfaraútköllum undanskildum.
Í þetta sinn eru 2 laus pláss en umsækjendur þurfa að hafa lokið fyrsta ári nýliðaþjálfunnar (Nýliðar II og lengra komnir) og vera virkir í því að afla sér frekari reynslu í fjallamennsku utan grunnþjálfunar HSSR.

Ef þú hefur gaman af því að ferðast um brattlendi og jökla, hræðist ekki erfiðar aðstæður og vond veður…
Ef þú hefur brennandi áhuga á fjallafræðunum, vilt kunna að tosa í réttu spottana og ert forfallingræjufíkill… Þá er þetta kannski málið fyrir þig.

Í umsókninni þarf að koma fram meðal annars hversu mörg ár þú hefur starfað í HSSR, hvaða námskeiðum þú hefur lokið og hvers konar fjallamennskureynslu þú hefur.
Athugið að í þjálfun með Undanförum er þess krafist að menn sæki sér stöðugt aukna fjallamennskureynslu á eigin vegum jafnframt því æfa með Undanförum.

Áhugasamir sendi tölvuskeyti á Helga á helghal(hjá)gmail.com. Allar nánari spurningar um það hvað felst í starfinu eru mjög velkomnar.

Undanfarar

—————-
Höfundur: Hlynur Skagfjörð Pálsson