Fyrsta hjálp 1 um helgina

Helgina 21.-23. janúar verður haldið námskeið í Fyrstu hjálp 1 á Malarhöfða. Kennari að þessu sinni verður Eiríkur Oddsson, en hann hefur kennt mörg fyrstu hjálpar námskeið hjá sveitinni.

Námskeiðið hefst stundvíslega kl. 18 á föstudagskvöldinu og stendur c.a. fram að kaffi á sunnudeginum. Þar sem æfingar verða einnig utandyra þarf að mæta klæddur eftir veðri. Kaffi og hádegisverðir báða dagana og kvöldmatur á laugardag.

Verðið er 2.500 krónur sem greiðast með seðlum á föstudagskvöldi, innifalið er bókin og matur.

Þetta námskeið er skyldunámskeið fyrir nýliða og skráning er hjá nýliðateymi, síðasta lagi á miðvikudag 20. janúar á slóðinni: http://tinyurl.com/fh1hssr2011

F.h. sjúkrahóps Katrín, Helgi og Trausti

—————-
Höfundur: Ásgeir Björnsson