Klifurmótaröðin 2010-2011

Fimmtudaginn 20. janúar verður annað klifurmót af fjórum haldið í klifurveggnum á M6. Um er að ræða einstaklingskeppni þar sem stig fást fyrir að klifra leiðir eða hluta úr leiðum. Keppt verður bæði í byrjendaflokki og súperflokki (metið af dómurum annars þeir sem hafa klifrað 5.8 leið eða erfiðari). Óþarfi er að skrá sig sérstaklega á mótið og dugir að mæta bara á fimmtudaginn, mótið hefst klukkan 19:00 og verður þar til fólk nennir ekki að klifra meir (ca. 23:59). Þeir sem vilja horfa á leikinn (tildæmist dómararnir Danni og Ottó :P) gera það og mæta svo bara aftur.

Vegleg verðlaun eru í boði í lok mótaraðarinnar og gilda þá samanlögð stig úr þremur bestu mótunum hjá hverjum og einum.

Nýliðar og þeir sem vilja koma og prófa að klifra eru sérstaklega hvattir til þess að mæta.

kveðja,

Daníel og Ottó

—————-
Texti m. mynd: Þessi verður klárlega á svæðinu
Höfundur: Ottó Ingi Þórisson