Klifurmót í kvöld

Klifurmótaröð HSSR

Í kvöld, fimmtudaginn 7. október verður fyrsta klifurmót af fjórum haldið í klifurveggnum á M6. Um er að ræða einstaklingskeppni þar sem stig fást fyrir að klifra leiðir eða hluta úr leiðum. Keppt verður í bæði í byrjendaflokki og súperflokki (þeir sem hafa klifrað 5.8 leið eða erfiðari).

Óþarfi er að skrá sig sérstaklega á mótið og dugir að mæta bara á fimmtudaginn, mótið hefst klukkan 19:00 og stendur til 22:00.

Vegleg verðlaun eru í boði í lok mótaraðarinnar og gilda þá samanlögð stig úr öllum fjórum mótunum.

Daníel og Ottó

—————-
Texti m. mynd: Þessi mætir!!
Höfundur: Daníel Másson

Klifurmót í Kvöld

Mánudaginn næstkomandi verður haldið stórfenglegt klifurmót í veggnum á M6. Keppt verður í liðakeppni þar sem 3 eru saman í liði, en einnig verður keppt í einstaklingskeppni. Ef einhver hefur áhuga á að keppa í liðakeppninni en vantar félaga þá endilega skráið ykkur sem staka og við reynum að raða saman í lið. Í liðakeppninni verður búningaþema og auk aðalvinninga verða vinningar fyrir bestu búningana. Keppnin er fyrir alla, konur og kalla, hvort sem klifurreynsla er mikil eða engin. Ekki þarf að keppa í báðum greinum. Mótið hefst kl. 19.30, en gott er að vera mættur örlítið fyrr til að kynna sér keppnina betur.

Hvet alla til að skrá sig, skráning er ennþá í gangi

Styrktaraðilar þessa klifurmóts eru:

Útilíf: www.utilif.is

Fjallakofinn: www.fjallakofinn.is

66°Norður: 66north.is

—————-
Höfundur: Katrín Möller