Nýliðakynningarfundur

Kynningarfundur um starfsemi og nýliðaþjálfun Hjálparsveitar skáta í Reykjavík verður haldinn að Malarhöfða 6 þriðjudagskvöldið 1. september og hefst kl. 20.00. Markmið Hjálparsveitar skáta í Reykjavík er að þjálfa upp öflugt leitar- og björgunarfólk til að taka þátt í útköllum og öðrum verkefnum sveitarinnar. Við leitum að fólki:

sem hefur reynslu og eða áhuga á ferðamennskusem hefur áhuga á leit og björgun og almennt að koma náunga sínum til aðstoðarsem er vel fært um að starfa í hóp en hefur einnig frumkvæði og getu til að vinna sjálfstætt. Lesa má nánar um nýliðastarfið í eftirfarandi bæklingi en umsóknir um að hefja nýliðastarf má nálgast hér.

Umsjón með nýliðastarfi HSSR í vetur hafa Hrafnhildur Hannesdóttir og Jóhanna Margrét Guðlaugsdóttir. Við hvetjum félaga til að mæta á kynningarkvöldið ásamt áhugasömum vinum og vandamönnum.

fyrir hönd nýliðateymis,
Hrafnhildur Hannesdóttir

—————-
Höfundur: Hrafnhildur Hannesdóttir