Tækjamót björgunarsveitanna verður haldið fyrir norðan um næstu helgi, – Skráning er á korknum fyrir þá sem vilja koma með.
kv.
Marteinn
—————-
Texti m. mynd: Hér er tæki um tæki frá tæki til tæki, eða…
Höfundur: Marteinn S. Sigurðsson
Fyrirlestur um aðkomu að látnum verður haldinn annað kvöld (7. mars) kl. 20.00. á M6.
Nýjar áherslur í tengslum við efnið verða lagðar fram o.fl.
Hvað gerum við þegar við komum að látnum einstaklingum í leit?
Farið yfir verklagsreglur sem okkur sem fagaðilum er ætlað að þekkja þegar við komum að látnum, hvers skal gæta og hvernig skal brugðist við. Þekking sem við þurfum því miður að afla okkur.
Fyrirlesari er Ármann Höskuldsson sjúkraflutningamaður og sviðstjóri fyrstu hjálparsviðs SL.
Fyrirlesturinn er opinn öllum félögum sveitarinnar. Um er að ræða málefni sem snertir okkur öll í starfi og því hvetjum við fólk til þess að fjölmenna á svæðið.
—————-
Höfundur: Edda Björk Gunnarsdóttir
Þannig var mál með vexti að við í tækjaflokk HSSR vorum að skipuleggja æfingaferð á jeppunum okkar. Þá fréttum við af félögum okkar í Hjálparsveit Skáta í Garðabæ að þeir væru að fara í bíltúr þessa sömuhelgi. Ákveðið var að hitta þá á Hveravöllum á Laugardagskvöld og keyra svo saman á sunnudeginum.
Á föstudeginum fréttu Kóparnir af okkur og ákváðu að smala í bílanna og koma með. Við fréttum að því að þeir væru að leggja af stað þegar við vorum í Þjórsárdalnum, og ákváðum að hringja í restina af sveitunum. Þá ákváðu Hafnfirðingar og Flubbar að koma líka.
Við keyrðum um Sóleyjarhöfðan í Setrið og gistum þar. Þegar við vorum komnir í koju komu Kóparnir. Morgunin eftir vöknðum við snemma og fórum út að keyra. Keyrðum að Kisugili og ákváðum að skoða Hofsjökul, hann leit svo vel út. Keyrðum upp í 1300 metra, en þá var skyggið farið svo við fórum niður í Kerlingarfjöll og uppá þau. Svo Kjalveg að Hveravöllum. Þar sem engir aðrir voru komnir kíktum við inn í Þjófadali og tókum létta spilæfingu.
Þegar við komum aftur voru Kóparnir mættir, fljótlega komu svo Hafnfirðingar eftir Kjalvegi og Garðbæingar yfir Arnarvatnsheiði. Svo var grillað og sagðar afrekssögur.
Sunnudagsmorgun var fagur og bjartur, svo við ákváðum að keyra að Ingólfsskála og athuga með Hofsjökul. Flubbarnir mættu á einkabílum, og einn einkabíll frá Garðbæingum hafði komið um nóttina. Veðrið var tær snild, og bekkurnar góðar. Við keyrðum yfir hofsjökul í flottu skyggni og niður í Setur og svo Klakksleið til byggða. Í ferðinni voru 2 Reykar, 2 Garðarar, 2 Kópar og 1 Spori, ásamt 2 einka Flubbum og einum einka Garðari.
Þetta var snildar ferð með skemmtilegu fólki og öflugum tækjum. Svona sameiginlegar æfingar tækjaflokka Hjálparsveitanna er eitthvað sem mætti gera miklu mikilu oftar.
Myndir eru komnar á myndasíðu.
—————-
Texti m. mynd: Reykur 3 í action
Höfundur: Baldur Gunnarsson
Ímyndið ykkar að þið væruð að ganga niður Laugaveginn og fengjuð gerfitungl ekki í hausinn!
Þetta, og fleira á Rötun 2 – GPS, þriðjudagskvöldið 21. febrúar kl. 20:00 á M6.
—————-
Höfundur: Gunnar Kr. Björgvinsson
Já undanfarar eru ekki bara langbestir að klifra. Við erum líka svakaduglegir að setja inn myndir og fréttir. Enn fleiri myndir af frábæru námskeiði má finna á fjallamyndagalleríi Íslands – gallery.askur.org. N’joy
Steppo
—————-
Vefslóð: gallery.askur.org/album487
Texti m. mynd: Hanna Kata fínpússar sveibblunah á Hornklofa
Höfundur: Stefán Örn Kristjánsson
Undirritaður og Robbi hafa tekið saman létta punkta og myndir um ísklifur – tækni, klæðnað og annað slíkt. Myndirnar má finna með því að smella á neðangreindan hlekk.
Steppo
—————-
Vefslóð: gallery.askur.org/album488
Texti m. mynd: Ísklifur er íþrótt sem krefst aga og undirbúnings!
Höfundur: Stefán Örn Kristjánsson
Fjallamennska 2 var haldin í Tindfjöllum um liðna helgi. Mættir voru fjórir nýliðar (Dóri, Hanna Kata, Hrafnhildur og Gulli) og þeim til leiðsagnar voru þrír undanfarar (Siggi Tommi, Steppó og Robbi).
Gegnu nýliðarnar úr Fljótshlíðinni upp í efsta (Ísalp) skála á föstudeginum og voru komin í hús upp úr kl. 01:00. Við hinir búðingarnir fórum á jeppa enda þurftum við að koma eldivið og rúmdýnum upp í skálann fyrir Ísalp.
Fengum við ákaflega góðan dag á laugardag og gekk kennsla mjög vel fyrir sig. Enduðum svo daginn á góðu klifri upp á Hornklofa og þræddum svo yfir á Búra áður en haldið var niður í skála í mögnuðu tunglskini og 20cm púðursnjó yfir öllu.Síðan var grilluð stórmáltíð og allir átu sig vel metta.
Pétur og sonur kíktu í heimsókn og gistu og nokkrir félagar í HSG tjölduðu rétt hjá okkur og kíktu í prattý.
Um nóttina gerði svo fárviðri en það var gengið yfir um hádegið um það leyti sem nýliðarnir voru lagðir af stað niður í Fljótshlíð aftur. Varð því lítið úr sunnudeginum annað en labbið niðureftir.
Sjá myndir á myndasíðunni:
—————-
Vefslóð: hssr.is/adminimages/myndir.asp?flokkur=159
Texti m. mynd: Hluti hópsins hliðrar sér undir klettum Hornklofa
Höfundur: Sigurður Tómas Þórisson
Núna kringum næstu helgi er verið að fara mála áhaldageymsluna og því verður dálítið drasl þar vegna þess….
Félagar eru því kvattir að vera ekki að setja neitt inn í þá geymslu fyrr en að því loknu sem og einnig að vera ekki með mikin umgang um þá geymslu. Ef nálgast þarf útkallsbúnað eða annað dót úr þeirri geymslu þá er langflest af því dóti á sama stað og í flugeldasöluni….
—————-
Höfundur: Ragnar Rúnar Svavarsson
Minni alla á fyrirlestur á M6 í kvöld.
Skyldunámskeið fyrir nýliða en í raun þörf upprifjun öllum þeim sem ferðast í fjalllendi að vetri til, hvort sem það er á bílum, sleðum, skíðum eða rassaþotum.
Sjá nánar undir “dagskrá” hér til vinstri.
—————-
Höfundur: Gunnar Kr. Björgvinsson
Þriðja klifurmót vetrarins var haldið fimmtudaginn 2. janúar sl. Gekk mótið vel og voru alls 9 klifrarar sem mættu til keppni. Hefði verið gaman að sjá fleiri frá HSSR en við vorum bara 3 mættir auk 6 góðra gesta…
Keppnin var hörð og var vel tekið á því. Var síðan gripið í s.k. “dry-tool” klifur í lok keppninnar en það var meira til gamans. Til stendur að halda opið Landsbjargar dry-tool mót í veggnum 16. febrúar nk. og eru allir velkomnir að klifra og/eða horfa á. Búið er að senda boðsbréf á flestar sveitir á höfuðborgarsvæðinu og er vonandi að einhverjir láti sjá sig.
Úrslit voru sem hér segir.
Opinn flokkur:
635 Róbert
620 Kristó (gestur, óstaðfestar tölur)
540 Sigurður Tómas
355 Vikar (gestur, óstaðfestar tölur)
335 Björgvin (gestur úr Ársæli)
295 Skarphéðinn (gestur)
250 Ása Sóley (gestur) (efsti keppandi í kvennaflokki)
250 Danni Más
240 Hrafnhildur (næst efsti keppandi í kvennaflokki)
240 Sissi (gestur úr Ársæli)
230 Gulli (eini keppandi í nýliðaflokki að þessu sinni)
Kúluvambaflokkur:
868 Sigurður Tómas
625 Sissi
470 Björgvin
431 Ása
356 Kristó
333 Vikar
294 Róbert
292 Hrafnhildur
242 Gulli
138 Skarphéðinn
125 Danni Más
Sjá nokkrar myndir á slóðinni að neðan. Von er á fleiri myndum úr klifrinu á allra næstu dögum…
—————-
Vefslóð: hssr.is/adminimages/myndir.asp?flokkur=158
Texti m. mynd: Ása Sóley glímir við leið #5 í klifurkeppninni
Höfundur: Sigurður Tómas Þórisson