Rúmlega 40 nýir nýliðar.

Rétt rúmlega 40 manns á aldrinum 18-54 ára hafa hafið nýliðaþjálfun hjá HSSR í haust en nú hefur verið lokað fyrir umsóknir. Um 40% þeirra eru kvenkyns en meðalaldurinn er 27,8 ár, sem er nokkuð hærra en vanalega.
Fyrir eru 36 virkir nýliðar 2 sem vonandi bætast í á útkallsskrána okkar í mars á næsta ári.

Næsta laugardag fara nýju nýliðarnir okkar í gönguferð um Selvogsgötu og eru fullgildir félagar að sjálfsögðu velkomnir með.

Nýliðar 2 munu hinsvegar nema leitartækni á Úlfljótsvatni.

—————-
Texti m. mynd: Nýliðar 1 á námskeiði um ferðabúnað
Höfundur: Hlynur Skagfjörð Pálsson