Stofnfundur Fjallahóps.

Ágætu félagar.

Nú stendur til að halda stofnfund nýja Fjallahópsins á fimmtudaginn

þrettánda kl. 20:00 á M6

Hópurinn er stofnaður á grunni gamla Viðbragðshópsins, en meiri kröfur

eru gerðar til félaga hópsins auk þess sem mun skarpari áherslur verða

í starfsemi hans m.v. þá starfsemi sem var hjá Viðbragðshópi. Ætlast

verður til að félagar taki þátt í a.m.k. 40% af starfsemi hópsins og

að hann verði í fyrsta sæti hjá þeim í starfi útkallshópa. Nú ætlum

við að stofna öflugan hóp fyrir þá félaga sem hafa mikinn áhuga á

fjallamennsku, fyrrum Undanfara og alla þá sem vilja efla starf

sveitarinnar í leit og björgun í fjalllendi.

M.kv. Árni og Raggi

—————-
Höfundur: Árni Tryggvason