Undanförum afhentur fjallabjörgunabúnaður

Slysavarnafélagið Landsbjörg afhenti í gær björgunarsveitum á svæði 1 sérhæfðan fjallabjörgunarbúnað. Búnaðurinn var fjármagnaður með þeim styrkjum sem félagið fékk í tengslum við björgunina á Langjökli á síðasta ári. Búnaðurinn verður geymdur í flugskýli Landhelgisgæslunnar til að nota í þyrluútköllum undanfara. Undanfararnir munu síðan sjá um að viðhalda honum og endurnýja eftir þörfum. Búnaðurinn er einnig hugsaður fyrir aðrar einingar til notkunar á slysstað og yrði hann þá sendur með þyrlu á staðinn.

—————-
Texti m. mynd: Fulltrúar björgunarsveitanna
Höfundur: Daníel Másson