Fjölskylduferð með A-1 í sumarbyrjun

Hinir síungu Eftirbátar boða til ferðar fyrir alla fjölskylduna helgina 9. til 11. júní. Stefnan er tekin á Þakgil sem er á milli Mýrdalsjökuls og Mýrdalssands. Í boði verður létt dagskrá sem felst í næturleik, kvöldvöku og gönguferðum. Gisting kostar 600 kr. nóttin fyrir 12 ára og eldri. Vinsamlega tilkynnið um þátttöku ykkar hjá starfsmanni HSSR – skrifstofa@hssr.is

Náttúruperlan Þakgil er staðsett á Höfðabrekkuafrétti milli Mýrdalsjökuls og Mýrdalssands 14 km frá þjóðveginum. Eins og nafn gilsins bendir til er þar mikil veðursæld.
Beygt er út af þjóðveginum við Höfðabrekku sem er 5 km austan við Vík. Ekið er sem leið liggur inn á heiðar, eftir vegi sem var þjóðvegur nr. 1 til 1955, þar til komið er að skilti sem bendir inn í Þakgil. Vegurinn inn í Þakgil er fær öllum bílum.
Á þessu svæði eru margar fallegar gönguleiðir við allra hæfi. Tjaldsvæði, snyrting og sturta eru á staðnum. Matsalurinn er náttúrulegur hellir og í honum eru borð og bekkir og bæði kamína og grill. Hægt er að veiða bleikju í fiskilóni sem er á svæðinu

Kveðja
Eftirbátar

—————-
Höfundur: Helga Garðarsdóttir